18.09.2123.12.21

Time Matter Remains Trouble er ný myndlistarsýning sem opnar í Hvelfingu laugardaginn 18. september kl. 17.00

Aðferðir sem manneskjur nota til að varðveita efni, fyrirbæri og þekkingu úr náttúrunni eru skoðaðar í brotakenndum sviðsmyndum. Eftirköst og framtíðarsýnir á niðurbroti könnuð, með eða án mannkynsins sem þátttakanda í því ferli.

Erum við að viðhalda þrákelknislegri sjálfsblekkingu með því að greina á milli fortíðar, nútíðar og framtíðar? Er tíminn alltaf afstæður, jafnvel fyrir líffræðilega skeiðklukku mannslíkamans? Af hverju getum við umbreytt orku úr einu formi í annað, en ekki skapað orku eða eytt henni? Er heildarmagn orku og efnis í alheiminum föst stærð, en á sífelldu flæði úr einu formi í annað? Ef svo fer að mannkynið verður ekki alveg útdautt einhvern tíma á næstu milljónum ára og hefur heldur ekki tekist að eyða öllu lífi á Jörðinni, hvað mun sitja eftir? Hverskonar líf lifir okkur af?